Leikskólinn Víðivellir óskar eftir leikskólakennara í fullt starf.
Leikskólinn Víðivellir er fjögurra deilda leikskóli í norðurbæ Hafnarfjarðar, í nálægð við margar náttúruperlur, söfn og menningarlíf bæjarins. Helstu áherslur í starfi skólans eru hreyfing og hollir lífshættir en útivera skipar einnig stóran sess í starfinu ásamt því að stuðla að auknum þroska hvers barns og að þau njóti sín og dafni við hlið vina sinna og kennara.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
- Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
- Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi á leikskóla er æskileg
- Góð færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
- Góð íslenskukunnátta
Upplýsingar um starfið veita Arnrún Einarsdóttir, leikskólastjóri, eða Svanhildur Birkisdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, í síma: 555-3599 eða vidivellir@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 19. Janúar 2021
Leyfisbréf og greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.