Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Velkomin á ráðningarvef Hafnarfjarðarbæjar.
Velkomin á ráðningarvef Hafnarfjarðarbæjar! Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins og þar starfa rúmlega 2000 einstaklingar.
Áhersla er lögð á að hjá bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Við ráðum hæfasta fólkið hverju sinni og fylgjum vönduðum stjórnsýsluháttum við ráðningar.
Var efnið hjálplegt?
Umsóknarfrestur frá: 28.03.2022
Umsóknarfrestur til: 01.08.2024
Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is
Deila starfi
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Umsóknarfrestur frá: 20.09.2023
Umsóknarfrestur til: 30.04.2024
Tengiliður: Dögg Gunnarsdóttur
Lækjarskóli auglýsir eftir kennara til að sinna tilfallandi og/eða fastri forfallakennslu.
Um er að ræða stundakennslu og er starfshlutfall frá 50-100% eftir samkomulagi. Óskað er eftir að starfsmaður hefji störf sem fyrst og starfi út skólaárið.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru um 450 talsins. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.
Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með fjögur meginmarkmið: Samstarf heimils og skóla, heilbrigði og vellíðan, aukinn árangur nemenda og altæka hönnun náms (UDL).
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Mennunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar veitir Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra í síma 6645877 dogg@laekjarskoli.is eða Örnu B. Arnardóttur, aðstoðarskólastjóri, arna@laekjarskoli.is .
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2023.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Umsóknarfrestur frá: 16.04.2024
Umsóknarfrestur til: 01.05.2024
Tengiliður: Svanhildur Birkisdóttir
Leikskólinn Víðivellir auglýsir eftir deildarstjóra í fullt starf. Þarf að geta hafið störf í ágúst 2024 eða eftir samkomulagi.
Leikskólinn Víðivellir er fyrsti leikskólinn sem Hafnarfjarðarbær rekur og tók til starfa árið 1977. Víðivellir er fjögurra deilda leikskóli. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á inngildandi leikskólastarf og í skólanum er góð aðstaða og sérþekking á að mæta þörfum margbreytilegs barnahóps. Leikskólinn er staðsettur við skemmtileg útivistarsvæði, stutt er í fjöru og hraun. Auk þess er lögð sérstök áhersla á vinnu með orðaforðanámskrá leikskólans, tákn með tali og skipulagða hreyfingu.
Á Víðivöllum starfar áhugasamur og metnaðarfullur hópur leikskólakennara, þroskaþjálfa, starfsmanna með aðra háskólamenntun og leikskóla- og frístundaliða. Lögð er sérstök áhersla á öfluga og samþætta þjónustu við þau börn sem þurfa á að halda og fjölskyldur þeirra og er skólinn í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga. Lagt er mikið upp úr því að hvert barn fái að njóta sín á sínum forsendum í barnahópnum.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fríðindi í starfi:
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanhildur Birkisdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555-3599
Umsóknarfrestur til 1. maí 2024
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Tengiliður: María Pálmadóttir
Setbergsskóli óskar eftir að ráða stærðfræðikennara í 100% starfshlutfall.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 auk þess sem starfrækt er sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru. Í skólanum er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á sköpun, fjölbreytt námsumhverfi, vellíðan, læsi, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum. Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vinsemd og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun.
Helstu verkefni umsjónarkennara:
Menntunar – og hæfnikröfur:
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2024
Skilyrði við ráðningu er hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is.
Umsóknarfrestur frá: 18.04.2024
Umsóknarfrestur til: 29.04.2024
Tengiliður: Guðlaug Ósk Gísladóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða deildarstjóra barnaverndar sem heyrir undir fjölskyldu- og barnamálasvið. Um fullt starf er að ræða.
Deildarstjóri barnaverndar er hluti af stjórnendateymi sviðsins og heyrir beint undir sviðsstjóra. Viðkomandi ber ábyrgð á því að fagleg vinnubrögð séu í starfi deildarinnar og tekur, ásamt öðrum stjórnendum, þátt í stefnumótun og innleiðingu nýjunga.
Á síðasta ári samþykkti Alþingi framkvæmdaáætlun í barnavernd 2023-2027 sem miðar að umfangsmikilli endurskoðun og úrbótum á þjónustu við börn. Næstu árin munu barnaverndarþjónustur sveitarfélaganna, mennta- og barnamálaráðuneytið og Barna- og fjölskyldustofa vinna samkvæmt áætluninni að aðgerðum í samstarfi við helstu aðila sem að þjónustunni koma. Þá verður áfram unnið að innleiðingu farsældarlaga innan sveitarfélagsins í samstarfi við mennta- og lýðheilsusvið sem og aðra hagaðila.
Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á samstarf með heildarsýn að leiðarljósi sem og metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.
Helstu verkefni og ábyrgð
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran, ráðgjafi hjá Intellecta (thelma@intellecta.is) og Guðlaug Ósk Gísladóttir, sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs, gudlaugg@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2024.
Umsókn óskast fyllt út á www.hafnarfjordur.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar um að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Umsóknarfrestur til: 02.05.2024
Tengiliður: Hrönn Bergþórsdóttir
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða fagkennara í stærðfræði og náttúrufræði skólaárið 2024 – 2025.
Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1970, skólinn er heildstæður skóli með 1. – 10. bekk og eru nemendur um 480. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkunar spjalda í skólastarfi. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, hronn@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, valaj@vidistadaskoli.is
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2024
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Tengiliður: Harpa Kolbeinsdóttir
Leikskólinn Stekkjarás leitar að starfsmanni í leikskóla í 100% starf. Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum einstakling sem hefur reynslu af vinnu með börnum.
Leikskólinn Stekkjarás er átta deilda og er staðsettur í Áslandshverfinu. Leikskólinn starfar eftir aðferðum Reggio Emilia og einkunnarorð leikskólans eru “Hugmyndir barnsins – verkefni dagsins”
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Harpa Kolbeinsdóttir, leikskólastjóri, harpako@hafnarfjordur.is eða Michelle Sonia Horne michelleho@hafnarfjordur.is í síma 517-5920.
Umsóknarfrestur er til 02. maí 2024
Fáist faglærður kennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grundvelli laga nr. 95/2019. Við hvetjum kennara til að sækja um. Leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf, eða KÍ ef kennaramenntaður einstaklingur sækir um starfið.
Tengiliður: Dögg Gunnarsdóttir
Lækjarskóli auglýsir eftir myndmenntakennara í 80% starf haustið 2024 – afleysing í eitt ár.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.
Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Við auglýsum nú eftir kennara á yngsta stigi sem jafnframt er tilbúinn til að taka þátt í metnaðarfullri þróun starfsins í Lækjarskóla.
Hafðu samband við Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra í síma 6645877 dogg@laekjarskoli.is eða Örnu B. Arnardóttur, aðstoðarskólastjóri, arna@laekjarskoli.is .
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2024.
Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Umsóknarfrestur frá: 19.04.2024
Umsóknarfrestur til: 03.05.2024
Leikskólinn Stekkjarás auglýsir eftir kennurum í 100% starf fyrir næsta skólaár.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Harpa Kolbeinsdóttir leikskólastjóri, harpako@hafnarfjordur.is eða í síma 517-5920 og Michelle Sonia Horne, aðstoðarleikskólastjóri, michelleho@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með . 3 maí 2024
Umsóknarfrestur til: 13.05.2024
Leikskólinn Stekkjarás auglýsir eftir sérkennslustjóra í 100% starf fyrir næsta skólaár.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða þroskaþjálfa með starfsréttindi sem slíkur sem hefur reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélag Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 13. maí 2024
Umsóknarfrestur frá: 22.04.2024
Umsóknarfrestur til: 07.05.2024
Tengiliður: gudbjorgh@hraunvallaskoli.is
Hraunvallaleikskóli vantar sérkennara til starfa.
Hraunvallaleikskólinn óskar eftir að ráða sérkennara í 50-100% starf. Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af sérkennslu með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Hraunvallaleikskóli er nú sex deilda leikskóli staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og allir hafa sama tækifæri til náms. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði um snemmtæka íhlutun. Mjög gott samstarf er við Hraunvallaskóla en leikskólinn er í sama húsnæði og grunnskólinn. Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans.
Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu.
Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg leikskólastjóri gudbjorgh@hraunvallaskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 7. maí 2024
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Tengiliður: Guðbjörg Hjaltadóttir
Besta starf í heimi með besta fólkinu
Hraunvallaleikskóli óskar eftir að ráða kennara í 50-100% starf.
Hraunvallaleikskóli er sex deilda leikskóli staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og allir hafa sama tækifæri til náms. Leikskólinn vinnur að þróunarverkefni um snemmtæka íhlutun. Mjög gott samstarf er við Hraunvallaskóla en leikskólinn er í sama húsnæði og grunnskólinn. Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans.
Ráðið er í starfið frá ágúst 2024 eða samkomulagi.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg leikskólastjóri gudbjorgh@hraunvallaskoli.is eða í síma 6645844
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2024
Umsóknarfrestur frá: 24.04.2024
Umsóknarfrestur til: 09.05.2024
Tengiliður: valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is
Öldutúnsskóli auglýsir eftir heimilisfræðikennara.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024.
Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk.
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur ríka áherslu á umhverfismál og hefur tekið á móti Grænfánanum fimm sinnum.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.
Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is og Margrét Sverrisdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2024.
Umsóknarfrestur frá: 26.04.2024
Umsóknarfrestur til: 10.05.2024
Öldutúnsskóli auglýsir eftir íþróttakennara
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áhersla er lögð á teymisvinnu.
Laun eru skv. kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2024.
Tengiliður: Elísabet Karlsdóttir
Leikskólinn Bjarkalundur auglýsir eftir kennara í fullt starf.
Leikskólinn Bjarkalundur er staðsettur á Völlunum og er fjögurra deilda leikskóli sem opnaði haustið 2016. Leikskólinn lítur til starfsaðferða Reggio Emilia. Áherslur leikskólans eru snemmtæk íhlutun í starfi með börnum ásamt læsi og flæði. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni, sem gengur m.a. út á það að veita jákvæðri hegðun athygli og styrkja hana. Gildi leikskólans eru samvinna, virðing og umhyggja. Samskipti innan skólans byggjast á þessum gildum og eiga þau að endurspeglast í öllu starfi skólans.
Í leikskólanum Bjarkalundi starfar jákvætt, áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk þar sem áhersla er lögð á fagmennsku.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Upplýsingar um starfið veitir Telma Ýr Friðriksdóttir leikskólastjóri og Elísabet Karlsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555-4941.
Umsóknarfrestur er til 10. maí 2024.
Tengiliður: Telma Ýr Friðriksdóttir
Leikskólinn Bjarkalundur auglýsir eftir leikskóla- og frístundaliða í fullt starf.
Leikskólinn Bjarkalundur er fjögurra deilda leikskóli sem er staðsettur á Völlunum og þar starfar jákvætt, áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk þar sem áhersla er lögð á fagmennsku.
Upplýsingar um starfið veitir Telma Ýr Friðriksdóttir leikskólastjóri, telmayr@hafnarfjordur.is og Elísabet Karlsdóttir, elisabetk@hafnarfjordur.is eða í síma 555-4941
Tengiliður: Lars J. Imsland
Hraunvallaskóli auglýsir eftir deildarstjóra í tómstundarmiðstöð skólans
Tómstundamiðstöð Hraunvallskóla samanstendur af frístundaheimilinu Hraunseli og félagsmiðstöðinni Mosanum. Í frístundaheimilinu Hraunseli er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir nemendur á aldrinum 6-9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi líkur til kl. 17:00 alla virka daga, óháð getu þroska eða fötlun en sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa. Félagsmiðstöðin Mosinn er fyrir börn og unglinga í 5.-10. bekk og er opin að jafnaði þrjú kvöld/eftirmiðdaga í viku. Aðaláherslan er á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir alla í 5.-10. bekk. Markmið starfsins er að gefa að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Hraunvallaskóli er heildstæður, grunnskóli staðsettur í fallegu umhverfi í hrauninu í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Einkunnarorð skólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Verkefni deildarstjóra:
Deildarstjóri ber ábyrgð á að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni. Hann ber ábyrgð á öryggi og vellíðan barna og starfsfólks, skapar andrúmsloft sem einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum vinnubrögðum. Hann vinnur náið með stjórnunarteymi Hraunvallaskóla.
Menntunar og hæfniskröfur:
Ferilskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is, Ásta Björk Björnsdóttir aðstoðarskólastjóri astabjork@hraunvallaskoli.is og Sara Pálmadóttir sarap@hafnarfjordur.is eða í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2024. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024. Um 100% starf er að ræða.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika
Umsóknarfrestur frá: 15.04.2024
Tengiliður: maria@setbergsskoli.is
Setbergsskóli óskar eftir að ráða heimilisfræðikennara í 80-100% starfshlufall.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.
Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum.
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans, setbergsskoli.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.setbergsskoli.is
Umsóknarfrestur frá: 01.09.2023
Umsóknarfrestur til: 31.08.2024
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Tengiliður: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem liðsmaður hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur.
Meginmarkmið með liðveislu er að rjúfa félagslega einangrun einstaklinga með fötlun og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem persónulegur ráðgjafi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur.
Meginmarkmið með persónulegri ráðgjöf er að veita börnum og unglingum stuðning til að takast á við persónuleg og félagsleg vandamál og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Umsóknarfrestur frá: 20.02.2024
Umsóknarfrestur til: 28.04.2024
Við leitum eftir hressum og jákvæðum starfsmönnum til starfa sem leikskóla- og frístundaliðar á leikskóla Hafnarfjarðarbæjar til sumarafleysinga.
Ráðningartíminn getur verið misjafn og að jafnaði frá miðjum maí fram í miðjan ágúst. Leikskólar Hafnarfjarðabæjar verða lokaðir frá 15. júlí til og með 5. ágúst.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð og sé 18 ára eða eldri.
Nánari upplýsingar um störfin veita leikskólastjórar á hverjum leikskóla.
Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2024.
Umsóknarfrestur frá: 10.04.2024
Tengiliður: Valdimar Víðisson
Öldutúnsskóli auglýsir eftir sérkennara í sérdeild.
Í Öldutúnsskóla er sérdeild fyrir nemendur á unglingastigi með væga þroskaröskun og er opin öllum skólahverfum bæjarins. Deildin starfar samkvæmt lögum um grunnskóla en þar er kveðið á um að nemendur með sérþarfir fái viðeigandi kennslu og stuðning í heimaskóla. Allir nemendur sérdeildarinnar eru skráðir í almenna bekki skólans. Sá bekkur sem nemandinn er skráður í er í daglegu tali nefndur tengslabekkur og taka nemendur þátt í bekkjarstarfinu að einhverju marki. Einstaklingsnámskrá er gerð fyrir nemendur í upphafi skólaárs og endurmetin við annarskil. Við reglulegt mat á námi nemenda eru framfarir metnar og tekið er tillit til breytinga við gerð nýrrar áætlunar.
Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til 29. apríl nk.
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Skemmtilegt starf með skemmtilegasta fólkinu.
Hraunvallaleikskóla óskar eftir deildarstjóra til starfa í fullt starf.
Hraunvallaleikskóli er sex deilda leikskóli staðsettur á völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og allir hafa sama tækifæri til náms. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði um snemmtæka íhlutun. Mjög gott samstarf er við Hraunvallaskóla en leikskólinn er í sama húsnæði og grunnskólinn. Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans.
Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingum sem hafa metnað fyrir starfinu.
Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2024.
Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg leikskólastjóri gudbjorgh@hraunvallaskoli.is eða í síma 6645844 og Þórhildur Sif Þórmundsdóttir í síma 8929822 eða thorhildurt@hraunvallaskoli.is
Umsóknarfrestur framlengdur til og með 29. apríl 2024.
Umsóknarfrestur frá: 03.04.2024
Tengiliður: Tinna Dahl Christiansen
Ákveðið hefur verið að opna fyrir umsóknir á biðlista fyrir sumarstarf hjá Hafnarfjarðarbæ, 18 ára og eldri. Biðlistinn verður opinn til og með 30. apríl 2024.
Á þessari stundu er alls óvíst hvort ráðið verður af biðlistanum og eru umsækjendur hvattir til að sækja einnig um annars staðar.
Vinnuskólinn býður upp á fjölbreytt störf t.d. við flokkstjórn, slátt, garðyrkjustörf, sumarnámskeið og fleira.
Fyrirspurnir má senda á skrifstofu Vinnuskólans á vinnuskoli@hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur frá: 09.04.2024
Öldutúnsskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á miðstigi.
· Annast almenna umsjónarkennslu á miðstigi í samvinnu við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra
· Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
· Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
· Vinna samkvæmt stefnu skólans
· Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
· Áhugi og/eða reynsla af umsjónarkennslu.
· Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
· Stundvísi og samviskusemi
· Mjög góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl nk.
Umsóknarfrestur frá: 12.04.2024
Öldutúnsskóli auglýsir eftir skrifstofustjóra í 100% starf.
Skrifstofustjóri vinnur náið með stjórnendum að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi og metnaðarfullu starfsumhverfi. Skrifstofustjóri starfar sem aðstoðarmaður skólastjóra um almennan rekstur skólans og starfar náið með stjórnendateymi skólans.
Helstu verkefni skrifstofustjóra:
Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2024
Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is eða Margrét Sverrisdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Ráðið er í stöðuna frá 1. september 2024.
Setbergsskóli óskar eftir að ráða kennara í íslensku sem annað mál í 100% starfshlutfall.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 auk þess sem þar er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Setbergsskóli er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru. Í skólanum er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á sköpun, fjölbreytt námsumhverfi, vellíðan, læsi, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum. Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.setbergsskoli.is
Greinargóð ferilskrá og starfsleyfi fylgi umsókn.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu.
Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf.
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Gerð er krafa um hreint sakavottorð.
Greinargóð ferliskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri Setbergsskóla, í síma 664-5880, maria@setbergsskoli.is.
Gert er ráð fyrir að skrifstofustjóri hefji störf 1. ágúst 2024.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Setbergsskóli óskar eftir leiklistarkennara í 60%-100% starfshlutfall.
Starfshlutfall er 60-100%. Um er að ræða afleysingastarf til eins árs.
Leikskólinn Bjarkalundur auglýsir eftir sérkennara eða þroskaþjálfa í 100% starf.
Leikskólinn Bjarkalundur er staðsettur á Völlunum og er fjögurra deilda leikskóli sem opnaði haustið 2016. Leikskólinn lítur til starfsaðferða Reggio Emilia. Áherslur leikskólans eru: Snemmtæk íhlutun í málþroska ungra barna ásamt læsi, flæði og hreyfingu. Unnið er samkvæmt SMT, markmið SMT gengur m.a. út á að veita jákvæðri hegðun athygli og styrkja hana. Gildi leikskólans eru samvinna, virðing og umhyggja. Þau samskipti sem gilda innan skólans byggjast á þessum gildum og eiga að endurspeglast í öllu starfi skólans.
Í leikskólanum Bjarkalundi starfar jákvætt, áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk sem leggur áherslu á fagmennsku.
Nánari upplýsingar veitir um starfið veita Telma Ýr Friðriksdóttir, leikskólastjóri (telmayr@hafnarfjordur.is), og Elísabet Karlsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri (elisabetk@hafnarfjordur.is) í síma: 555-4941.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélag Íslands.