Kennari – Leikskólinn Bjarkalundur
Umsóknarfrestur frá: 09.05.2022
Umsóknarfrestur til: 24.05.2022
Tengiliður: Telma Ýr Friðriksdóttir
Leikskólinn Bjarkalundur auglýsir eftir kennara í 100% starf.
Leikskólinn Bjarkalundur er staðsettur á Völlunum og er fjögurra deilda leikskóli sem opnaði haustið 2016. Leikskólinn lítur til starfsaðferða Reggio Emilia. Áherslur leikskólans eru snemmtæk íhlutun í starfi með börnum ásamt læsi og flæði. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni, sem gengur m.a. út á það að veita jákvæðri hegðun athygli og styrkja hana. Gildi leikskólans eru samvinna, virðing og umhyggja. Samskipti innan skólans byggjast á þessum gildum og eiga þau að endurspeglast í öllu starfi skólans.
Í leikskólanum Bjarkalundi starfar jákvætt, áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk þar sem áhersla er lögð á fagmennsku.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi í samstarfi við deildarstjóra
• Fylgist vel með velferð barna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
• Vinnur náið í samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
• Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er eiga við og aðaðlámskrá leikskóla.
• Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
• Reynsla af starfi í leikskóla er æskileg
• Þekking á starfsaðferðum Reggio Emilia er æskileg
• Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Góð íslenskukunátta er skilyrði
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Upplýsingar um starfið veitir Telma Ýr, leikskólastjóri, telmayr@hafnarfjordur.iseða í síma 555-4941
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 24, maí 2022.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Fríðindi í starfi
• Tilboð á strætókortum – 12 mánuðir á verði 9 mánaða strætókorts
• Menningarkort – bókasafnskort
• Heilsuræktarstyrkur
• Sundkort
• Afsláttur af leikskólagjöldum