Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Velkomin á ráðningarvef Hafnarfjarðarbæjar.
Velkomin á ráðningarvef Hafnarfjarðarbæjar! Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins og þar starfa rúmlega 2000 einstaklingar.
Áhersla er lögð á að hjá bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Við ráðum hæfasta fólkið hverju sinni og fylgjum vönduðum stjórnsýsluháttum við ráðningar.
Var efnið hjálplegt?
Umsóknarfrestur frá: 01.09.2023
Umsóknarfrestur til: 31.08.2024
Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is
Deila starfi
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Umsóknarfrestur frá: 10.04.2024
Umsóknarfrestur til: 24.04.2024
Tengiliður: maria@setbergsskoli.is
Setbergsskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stig. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2024.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.
Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum.
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans, setbergsskoli.is.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar – og hæfnikröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.setbergsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl n.k.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Tengiliður: Elísabet Karlsdóttir
Leikskólinn Bjarkalundur auglýsir eftir kennara í fullt starf.
Leikskólinn Bjarkalundur er staðsettur á Völlunum og er fjögurra deilda leikskóli sem opnaði haustið 2016. Leikskólinn lítur til starfsaðferða Reggio Emilia. Áherslur leikskólans eru snemmtæk íhlutun í starfi með börnum ásamt læsi og flæði. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni, sem gengur m.a. út á það að veita jákvæðri hegðun athygli og styrkja hana. Gildi leikskólans eru samvinna, virðing og umhyggja. Samskipti innan skólans byggjast á þessum gildum og eiga þau að endurspeglast í öllu starfi skólans.
Í leikskólanum Bjarkalundi starfar jákvætt, áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk þar sem áhersla er lögð á fagmennsku.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fríðindi í starfi:
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Upplýsingar um starfið veitir Telma Ýr Friðriksdóttir leikskólastjóri og Elísabet Karlsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555-4941.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til 24. apríl 2024.
Umsóknarfrestur frá: 11.04.2024
Umsóknarfrestur til: 25.04.2024
Tengiliður: dogg@laekjarskoli.is
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum deildarstjóra til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í Lækjarskóla.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Nemendur eru um 450 talsins. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota. Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með þrjú meginmarkmið: Samstarf heimils og skóla, heilbrigði og vellíðan og samvinna
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Fyrir nokkrum árum hófst innleiðing á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíkan hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Menntun og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar veitir Dögg Gunnarsdóttir, skólastjóra í síma 6645877 eða með tölvupósti dogg@laekjarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2024.
Greinagóð ferilsskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Tengiliður: Dögg Gunnarsdóttir
Lækjarskóli auglýsir eftir kennara á yngsta stigi í 100% starf haustið 2024.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Við auglýsum nú eftir kennara á yngsta stigi sem jafnframt er tilbúinn til að taka þátt í metnaðarfullri þróun starfsins í Lækjarskóla.
· Annast almenna umsjónarkennslu á yngsta stigi með fjölbreyttum kennsluháttum.
· Vinna að þróun UDL og annarri skólaþróun í Lækjarskóla í samvinnu við skólasamfélagið.
· Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við skólasamfélagið
· Starfa samkvæmt SMT-skólafærni
· Taka þátt í stefnumótun skólans.
· Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari (leyfisbréf skal fylgja umsókn).
· Kennslureynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum á yngsta stigi æskileg.
· Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
· Mjög góð íslenskukunnátta
· Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á G-suite og Mentor.
· Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Stundvísi og samviskusemi
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.
Hafðu samband við Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra í síma 6645877 dogg@laekjarskoli.is eða Örnu B. Arnardóttur, aðstoðarskólastjóri, arna@laekjarskoli.is .
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Tengiliður: Unnur Elfa Guðmundsdóttir
Áslandsskóli óskar eftir að ráða íþróttakennara skólaárið 2024-20258
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2021 og er um að ræða 50-100% starf.
Áslandsskóli var stofnaður árið 2001 og er staðsettur í Áslandsshverfi í Hafnarfirði. Áslandsskóli er heildstæður grunnskóli með 1.-10.bekk og eru nemendur um 450 talsins. Einkunnarorð Áslandsskóla eru samvinna, ábyrgð, tillitsemi og traust. Áslandsskóli er heilsueflandi grunnskóli og er unnið markvisst að þeim málum innan skólans. Lögð er áhersla á að nemendur fái námsefni við hæfi og þrói þannig og þroski hæfileika sína með markvissum hætti. Í skólanum er lögð áhersla á vellíðan nemenda og góðan námsárangur.
Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum, styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda og skapa jákvæðan skólabrag.
Skólinn byggir stefnu sína á fjórum stoðum náms og menntunar sem eru:
Hver árgangur mætir a.m.k. einu sinni í viku í morgunstund á sal og er með lífsleikni hjá umsjónarkennara einu sinni í viku til viðbótar. Morgunstundir eru vettvangur til að vinna með dygðir og stoðir skólans.
Áslandsskóli notar spjaldtölvur í 5.-10. bekk skólans og hafa allir nemendur í þeim árgöngum afnot af slíku námstæki, sem hefur reynst vel í námi og stöðugt verið að þróa nýjar aðferðir til kennslu. Nemendur í yngri bekkjum hafa einnig kost á að nýta spjaldtölvurnar.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.aslandsskoli.is
Menntunar og hæfniskröfur:
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024
Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnur Elfa Guðmundsdóttir skólastjóri, unnur@aslandsskoli.is, og Hálfdan Þorsteinsson aðstoðarskólastjóri halfdanth@aslandsskoli.is eða í síma 585-4600.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 25.apríl 2024
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins
Umsóknarfrestur frá: 12.04.2024
Umsóknarfrestur til: 29.04.2024
Tengiliður: Valdimar Víðisson
Öldutúnsskóli auglýsir eftir skrifstofustjóra í 100% starf.
Skrifstofustjóri vinnur náið með stjórnendum að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi og metnaðarfullu starfsumhverfi. Skrifstofustjóri starfar sem aðstoðarmaður skólastjóra um almennan rekstur skólans og starfar náið með stjórnendateymi skólans.
Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk.
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur ríka áherslu á umhverfismál og hefur tekið á móti Grænfánanum fimm sinnum.
Helstu verkefni skrifstofustjóra:
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2024
Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is eða Margrét Sverrisdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Ráðið er í stöðuna frá 1. september 2024.
Umsóknarfrestur frá: 15.04.2024
Tengiliður: María Pálmadóttir
Setbergsskóli óskar eftir að ráða kennara í íslensku sem annað mál í 100% starfshlutfall.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 auk þess sem þar er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Setbergsskóli er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru. Í skólanum er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á sköpun, fjölbreytt námsumhverfi, vellíðan, læsi, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum. Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2024.
Greinargóð ferilskrá og starfsleyfi fylgi umsókn.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu.
Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf.
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Gerð er krafa um hreint sakavottorð.
Greinargóð ferliskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri Setbergsskóla, í síma 664-5880, maria@setbergsskoli.is.
Gert er ráð fyrir að skrifstofustjóri hefji störf 1. ágúst 2024.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Setbergsskóli óskar eftir leiklistarkennara í 60%-100% starfshlutfall.
Starfshlutfall er 60-100%. Um er að ræða afleysingastarf til eins árs.
Setbergsskóli óskar eftir að ráða heimilisfræðikennara í 80-100% starfshlufall.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.setbergsskoli.is
Umsóknarfrestur frá: 16.04.2024
Umsóknarfrestur til: 30.04.2024
Tengiliður: Lars J. Imsland
Hraunvallaskóli auglýsir eftir deildarstjóra í tómstundarmiðstöð skólans
Tómstundamiðstöð Hraunvallskóla samanstendur af frístundaheimilinu Hraunseli og félagsmiðstöðinni Mosanum. Í frístundaheimilinu Hraunseli er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir nemendur á aldrinum 6-9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi líkur til kl. 17:00 alla virka daga, óháð getu þroska eða fötlun en sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa. Félagsmiðstöðin Mosinn er fyrir börn og unglinga í 5.-10. bekk og er opin að jafnaði þrjú kvöld/eftirmiðdaga í viku. Aðaláherslan er á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir alla í 5.-10. bekk. Markmið starfsins er að gefa að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Hraunvallaskóli er heildstæður, grunnskóli staðsettur í fallegu umhverfi í hrauninu í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Einkunnarorð skólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Verkefni deildarstjóra:
Deildarstjóri ber ábyrgð á að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni. Hann ber ábyrgð á öryggi og vellíðan barna og starfsfólks, skapar andrúmsloft sem einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum vinnubrögðum. Hann vinnur náið með stjórnunarteymi Hraunvallaskóla.
Ferilskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is, Ásta Björk Björnsdóttir aðstoðarskólastjóri astabjork@hraunvallaskoli.is og Sara Pálmadóttir sarap@hafnarfjordur.is eða í síma 590 2800.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2024. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024. Um 100% starf er að ræða.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika
Lækjarskóli auglýsir eftir myndmenntakennara í 80% starf haustið 2024
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2024.
Umsóknarfrestur frá: 20.09.2023
Tengiliður: Dögg Gunnarsdóttur
Lækjarskóli auglýsir eftir kennara til að sinna tilfallandi og/eða fastri forfallakennslu.
Um er að ræða stundakennslu og er starfshlutfall frá 50-100% eftir samkomulagi. Óskað er eftir að starfsmaður hefji störf sem fyrst og starfi út skólaárið.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru um 450 talsins. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.
Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með fjögur meginmarkmið: Samstarf heimils og skóla, heilbrigði og vellíðan, aukinn árangur nemenda og altæka hönnun náms (UDL).
Mennunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar veitir Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra í síma 6645877 dogg@laekjarskoli.is eða Örnu B. Arnardóttur, aðstoðarskólastjóri, arna@laekjarskoli.is .
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2023.
Umsóknarfrestur til: 01.05.2024
Tengiliður: Svanhildur Birkisdóttir
Leikskólinn Víðivellir auglýsir eftir deildarstjóra í fullt starf. Þarf að geta hafið störf í ágúst 2024 eða eftir samkomulagi.
Leikskólinn Víðivellir er fyrsti leikskólinn sem Hafnarfjarðarbær rekur og tók til starfa árið 1977. Víðivellir er fjögurra deilda leikskóli. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á inngildandi leikskólastarf og í skólanum er góð aðstaða og sérþekking á að mæta þörfum margbreytilegs barnahóps. Leikskólinn er staðsettur við skemmtileg útivistarsvæði, stutt er í fjöru og hraun. Auk þess er lögð sérstök áhersla á vinnu með orðaforðanámskrá leikskólans, tákn með tali og skipulagða hreyfingu.
Á Víðivöllum starfar áhugasamur og metnaðarfullur hópur leikskólakennara, þroskaþjálfa, starfsmanna með aðra háskólamenntun og leikskóla- og frístundaliða. Lögð er sérstök áhersla á öfluga og samþætta þjónustu við þau börn sem þurfa á að halda og fjölskyldur þeirra og er skólinn í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga. Lagt er mikið upp úr því að hvert barn fái að njóta sín á sínum forsendum í barnahópnum.
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanhildur Birkisdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555-3599
Umsóknarfrestur til 1. maí 2024
Setbergsskóli óskar eftir að ráða stærðfræðikennara í 100% starfshlutfall.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 auk þess sem starfrækt er sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru. Í skólanum er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á sköpun, fjölbreytt námsumhverfi, vellíðan, læsi, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum. Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vinsemd og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun.
Helstu verkefni umsjónarkennara:
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2024
Skilyrði við ráðningu er hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur frá: 17.04.2024
Tengiliður: Jóna Elín Pétursdóttir
Leikskólinn Hörðuvellir óskar eftir að ráða stuðningsaðila í 100% starf.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem hefur metnað og áhuga fyrir starfinu.
Starfið er laust eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóna Elín Pétursdóttir jonaelin@hafnarfjordur.is síma 5550721
Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2024
Greinargóð ferilskrá og eða leyfisbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur frá: 18.04.2024
Tengiliður: Guðlaug Ósk Gísladóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða deildarstjóra barnaverndar á fjölskyldu- og barnamálasviði. Um fullt starf er að ræða.
Deildarstjóri barnaverndar er hluti af stjórnendateymi sviðsins og heyrir beint undir sviðsstjóra. Hann ber ábyrgð á því að fagleg vinnubrögð séu í starfi deildarinnar og tekur ásamt öðrum stjórnendum þátt í stefnumótun og innleiðingu nýunga.
Á síðasta ári samþykkti Alþingi framkvæmdaráætlun í barnavernd 2023-2027 sem miðar að umfangsmikilli endurskoðun og úrbótum á þjónustu við börn. Næstu árin munu barnaverndarþjónustur sveitarfélaganna, mennta-og barnamálaráðuneytið og Barna- og fjölskyldustofa vinna samkvæmt áætluninni að aðgerðum í samtarfi við helstu aðila sem að þjónustunni koma. Þá verður áfram unnið að innleiðingu farsældarlaga innan sveitarfélagsins í samstarfi við mennta- og lýðheilsusvið sem og aðra hagaðila.
Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á samstarf með heildarsýn að leiðarljósi sem og metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran, ráðgjafi hjá Intellecta (thelma@intellecta.is) og Guðlaug Ósk Gísladóttir, sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs, gudlaugg@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500
Umsókn óskast fyllt út á www.hafnarfjordur.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar um að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Setbergsskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara í miðdeild. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans.
Umsóknarfrestur frá: 09.04.2024
Umsóknarfrestur til: 23.04.2024
Tengiliður: Árný S Steindórsdóttir
Öflugur og faglegur leiðtogi óskast í stöðu leikskólastjóra í leikskólann Víðivelli. Leitað er eftir einstaklingi sem býr yfir góðum samstarfshæfileikum, er lausnamiðaður og hefur skýra framtíðarsýn um að viðhalda metnaðarfullu leikskólastarfi.
Leikskólinn Víðivellir er fyrsti leikskólinn sem Hafnarfjarðarbær byggði og tók til starfa árið 1977. Víðivellir er fjögurra deilda leikskóli. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á inngildandi leikskólastarf. Í skólanum er góð aðstaða og sérþekking á að mæta þörfum margbreytilegs barnahóps. Leikskólinn er staðsettur við skemmtileg útivistarsvæði, stutt er í fjöru og hraun sem auðgar útikennslu skólans.
Á Víðivöllum starfar áhugasamur og metnaðarfullur hópur leikskólakennara, þroskaþjálfa, starfsmanna með aðra háskólamenntun og leikskóla- og frístundaliða. Lögð er sérstök áhersla á öfluga og samþætta þjónustu við þau börn sem þurfa á að halda og fjölskyldur þeirra. Skólinn er í nánu samstarfi við sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga. Lagt er mikið upp úr því að hvert barn fái að njóta sín á sínum forsendum í barnahópnum.
Í Hafnarfirði eru íbúar um 30.000, sveitarfélagið rekur 17 leikskóla og er með þjónustusamning við einn til viðbótar. Hafnarfjarðarbær er heilsueflandi vinnustaður og styður við heilsueflingu starfsmanna sinna með fjölbreyttum hætti.
Markmið mennta- og lýðheilsusviðs er að vera faglegt og framsækið forystuafl í mennta-, æskulýðs- og íþróttamálum og veita börnum og fjölskyldum í bænum heildstæða þjónustu og stuðla að samfellu í öllu starfi sem hefur velferð íbúa að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar veitir Árný S Steindórsdóttir, deildarstjóri leikskólamála, arnyst@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ
Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2024
Umsókn um starfið þarf að fylgja greinagóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum umsækjanda, menntun, stjórnunarreynslu og hæfni til að sinna starfi leikskólastjóra ásamt afriti af prófskírteini.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Tengiliður: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem liðsmaður hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur.
Meginmarkmið með liðveislu er að rjúfa félagslega einangrun einstaklinga með fötlun og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem persónulegur ráðgjafi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur.
Meginmarkmið með persónulegri ráðgjöf er að veita börnum og unglingum stuðning til að takast á við persónuleg og félagsleg vandamál og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Umsóknarfrestur frá: 20.02.2024
Umsóknarfrestur til: 28.04.2024
Við leitum eftir hressum og jákvæðum starfsmönnum til starfa sem leikskóla- og frístundaliðar á leikskóla Hafnarfjarðarbæjar til sumarafleysinga.
Ráðningartíminn getur verið misjafn og að jafnaði frá miðjum maí fram í miðjan ágúst. Leikskólar Hafnarfjarðabæjar verða lokaðir frá 15. júlí til og með 5. ágúst.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð og sé 18 ára eða eldri.
Nánari upplýsingar um störfin veita leikskólastjórar á hverjum leikskóla.
Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2024.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf, eða KÍ ef kennaramenntaður einstaklingur sækir um starfið.
Fáist faglærður kennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grundvelli laga nr. 95/2019. Við hvetjum kennara til að sækja um. Leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur frá: 23.02.2024
Tengiliður: Kristín Ólafsdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Steinahlíð. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið helgar, morgun, kvöld og næturvaktir. Starfshlutfall eftir samkomulagi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið er hægt að nálgast hjá Ingibjörgu Ólafsdóttur yfirþroskaþjálfi í síma: 565-5344 , netfang: ingibjorgo@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 23.04.2024
Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur til: 26.04.2024
Öldutúnsskóli auglýsir eftir sérkennara í sérdeild.
Í Öldutúnsskóla er sérdeild fyrir nemendur á unglingastigi með væga þroskaröskun og er opin öllum skólahverfum bæjarins. Deildin starfar samkvæmt lögum um grunnskóla en þar er kveðið á um að nemendur með sérþarfir fái viðeigandi kennslu og stuðning í heimaskóla. Allir nemendur sérdeildarinnar eru skráðir í almenna bekki skólans. Sá bekkur sem nemandinn er skráður í er í daglegu tali nefndur tengslabekkur og taka nemendur þátt í bekkjarstarfinu að einhverju marki. Einstaklingsnámskrá er gerð fyrir nemendur í upphafi skólaárs og endurmetin við annarskil. Við reglulegt mat á námi nemenda eru framfarir metnar og tekið er tillit til breytinga við gerð nýrrar áætlunar.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.
Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til 26. apríl nk.
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Tengiliður: Guðbjörg Hjaltadóttir
Skemmtilegt starf með skemmtilegasta fólkinu.
Hraunvallaleikskóla óskar eftir deildarstjóra til starfa í fullt starf.
Hraunvallaleikskóli er sex deilda leikskóli staðsettur á völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og allir hafa sama tækifæri til náms. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði um snemmtæka íhlutun. Mjög gott samstarf er við Hraunvallaskóla en leikskólinn er í sama húsnæði og grunnskólinn. Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans.
Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingum sem hafa metnað fyrir starfinu.
Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2024.
Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg leikskólastjóri gudbjorgh@hraunvallaskoli.is eða í síma 6645844 og Þórhildur Sif Þórmundsdóttir í síma 8929822 eða thorhildurt@hraunvallaskoli.is
Umsóknarfrestur framlengdur til og með 29. apríl 2024.
Umsóknarfrestur frá: 03.04.2024
Umsóknarfrestur til: 19.04.2024
Tengiliður: Kristján Hans Óskarsson
Öldutúnsskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundaliða til starfa.
Um er að ræða 50% starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Selinu eftir hádegi alla virka daga.
Í tómstundamiðstöðinni er starfsemi frístundaheimilis fyrir 6 – 9 ára börn og félagsmiðstöð fyrir 10 – 16 ára börn. Markmið tómstundamiðstöðvarinnar er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu
Í Öldutúnsskóla eru um 620 nemendur í 1. – 10. bekk.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Hans Óskarsson, deildarstjóri tómstundar, í síma 664-5712 og í gegnum tölvupóst kristjan.oskarsson@oldutunsskoli.is. Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma 664-5898 og í gegnum tölvupóst valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til 19. apríl 2024
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við STH.
Umsóknarfrestur til: 27.04.2024
Tengiliður: Eiríkur Stephensen
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir forskólakennara, um 40% starf er að ræða. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2024.
Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti.
Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar eru um 600 nemendur og 50 kennarar.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Stephensen, skólastjóri, í síma 664-5882 og í gegnum tölvupóst eirikur@tonhaf.is og Stefán Ómar Jakobsson, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5884 og í gegnum tölvupóst stefanj@tonhaf.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2024
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FT/FÍH.
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir rafgítarkennara, um fullt starf er að ræða. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2024.
Tengiliður: Tinna Dahl Christiansen
Ákveðið hefur verið að opna fyrir umsóknir á biðlista fyrir sumarstarf hjá Hafnarfjarðarbæ, 18 ára og eldri. Biðlistinn verður opinn til og með 30. apríl 2024.
Á þessari stundu er alls óvíst hvort ráðið verður af biðlistanum og eru umsækjendur hvattir til að sækja einnig um annars staðar.
Vinnuskólinn býður upp á fjölbreytt störf t.d. við flokkstjórn, slátt, garðyrkjustörf, sumarnámskeið og fleira.
Fyrirspurnir má senda á skrifstofu Vinnuskólans á vinnuskoli@hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur frá: 27.05.2022
Umsóknarfrestur til: 18.04.2024
Tengiliður: Berglind Kristjánsdóttir
Skarðshlíðarleikskóli auglýsir eftir metnaðarfullum deildarstjóra í 100% starf.
Æskilegt er að viðkomandi geti haft störf í haust.
Skarðshlíðarleikskóli er nýlegur fjögurra deilda skóli, staðsettur að Hádegisskarði 1. í einungis 4 mínútna fjarlægð við Reykjanesbraut um Kaldárselsveg.
Hugmyndafræðilegur grunnur skólans tekur mið af lærdómssamfélagi (e. Professional Learning Community) þar sem allir læra saman og áhersla er lögð á virka þátttöku við að þróa öflugt skólastarf. Við leggjum áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barnanna í gegnum leikinn. Stefna skólans tekur mið af Fjölgreindakenningu Howards Gardners og Uppeldi til ábyrgðar.
Lögð er áhersla á lýðræði, frumkvæði, hlýju og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barnanna í gegnum leikinn. Við viljum skapa góðan starfsanda þar sem allir fá að njóta sín og leggja sitt af mörkum.
Þar sem þetta er nýr leikskólinn færð þú gullið tækifæri til að taka þátt í að móta námskrá leikskólans, búa til hefðir og starfa í nánu samstarfi við grunnskóla, tónmenntaskóla, íþróttahús og bókasafn, því við erum öll í sömu byggingunni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir <a href="mailto:Berglind%20Kristjánsdóttir%20″>Berglind Kristjánsdóttir leikskólastjóri í síma 527 7380
Umsóknarfrestur er til 18. apríl 2024
Umsóknarfrestur frá: 05.04.2024
Tengiliður: Björn Bögeskov Hilmarsson
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða tvo tækjamenn í þjónustumiðstöð. Þjónustumiðstöð heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið og er staðsett að Norðurhellu 2. Um er að ræða 100% stöðugildi í dagvinnu, auk bakvakta.
Í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar eru 20 stöðugildi og starfa starfsmenn við mjög fjölbreytt viðhaldsverkefni á svæðum bæjarins sem og við stofnanir.
· Viðhald og viðgerðir á götum, göngustígum, niðurföllum, regnvatnslögnum o.fl.
· Snjómokstur og hálkueyðing á götum og göngustígum
· Viðhald, umhirða og viðgerðir á opnum svæðum og á stofnanalóðum
· Viðhald, viðgerðir, umhirða og eftirlit með eignum sem tilheyra bænum
· Ýmis þjónusta við bæjarbúa
· Ýmis vinna og flutningar fyrir stofnanir bæjarins
· Vinna við hátíðarhöld og viðburði á vegum bæjarins
· Önnur verkefni skv starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
· Meiraprófsréttindi C eða C1
· Reynsla af sambærilegum störfum kostur
· Marktæk og góð reynsla af akstri stærri tækja
· Reynsla af almennum verkamannastörfum æskileg
· Jákvætt viðmót þjónustulund, samstarfs- og samskiptahæfni
· Sjálfstæð, nákvæm og skipulögð vinnubrögð
· Líkamlega fær um að sinna þeim verkefnum sem starfið felur í sér
· Íslenskukunnátta æskileg
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf.
Nánari upplýsingar um starfið veita Björn Bögeskov Hilmarsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: boddi@hafnarfjordur.is og Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: siggih@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 26.apríl 2024.
Besta starf í heimi með besta fólkinu
Hraunvallaleikskóli óskar eftir að ráða kennara í 50-100% starf.
Hraunvallaleikskóli er sex deilda leikskóli staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og allir hafa sama tækifæri til náms. Leikskólinn vinnur að þróunarverkefni um snemmtæka íhlutun. Mjög gott samstarf er við Hraunvallaskóla en leikskólinn er í sama húsnæði og grunnskólinn. Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans.
Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu.
Ráðið er í starfið frá ágúst 2024 eða samkomulagi.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg leikskólastjóri gudbjorgh@hraunvallaskoli.is eða í síma 6645844
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2024
Öldutúnsskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á miðstigi.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024.
· Annast almenna umsjónarkennslu á miðstigi í samvinnu við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra
· Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
· Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
· Vinna samkvæmt stefnu skólans
· Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
· Áhugi og/eða reynsla af umsjónarkennslu.
· Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is og Margrét Sverrisdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl nk.
Umsóknarfrestur til: 02.05.2024
Tengiliður: Hrönn Bergþórsdóttir
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða fagkennara í stærðfræði og náttúrufræði skólaárið 2024 – 2025.
Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1970, skólinn er heildstæður skóli með 1. – 10. bekk og eru nemendur um 480. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkunar spjalda í skólastarfi. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, hronn@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, valaj@vidistadaskoli.is
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2024
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.